Hvað er málið?

Hvað er málið með tryggingafélög? Af hverju getur þetta lið ekki dru***ast til að senda manni tilboð í tölvupósti í stað þess að heimta að fá að koma inn á heimili manns til að ræða málin?  Ekki í milljón ár langar mig að bjóða einhverri tryggingasölumanneskju að setjast við eldhúsborðið mitt að ræða við mig þjónustu sem téð manneskja vill selja mér.  Ég hef nóg annað við tíma minn að gera en að sitja uppi með ókunnuga manneskju inni hjá mér!

Ef þig langar svona hrottalega að selja mér tryggingu, SENDU MÉR E-MAIL !!!

Þessi pirringur var í boði Tryggingamiðlunar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er líka með pirring í boði VÍS. Samtalið var einhvern veginn á þessa leið:

Símastúlka: Já ég heiti bla bla og er að hringja frá VÍS. Má bjóða þér að koma í viðtal til okkar?

Ég: Uh, nei.

Símastúlka: Ok, allt í lagi, bless...

Frábær sölumaður

Margrét (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 12:06

2 Smámynd: gógó

Þið eruð óborganlegar... önnur kvartar undan of miklum þrýstingi frá sölumanni en hin undan of litlum þrýstingi.....

gógó, 20.2.2009 kl. 17:40

3 identicon

Ég hafði bara samband við gaur sem fékk tilboð frá öllum tryggingafyrirtækjum og meilaði síðan bara á mig. Frekar lovely :)

Anna Sjöfn (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband